Myndakvöld um Fjallabak

Hefðbundið FÍ myndakvöld með myndagetraun og tilheyrandi verður haldið þriðjudaginn 10. apríl.

Myndakvöldið er í sal Ferðafélagsins í Mörkinni 6 og hefst kl. 20.

Á dagskránni er bæði myndagetraun og myndasýning:

1. Myndagetraun með gamla laginu. Umsjón hefur Leifur Þorsteinsson.

2. Myndasýning um Friðland að Fjallabaki. Umsjón hefur Ólafur Örn Haraldsson.

Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir.