Næsta myndakvöld FÍ verður haldið miðvikudaginn 11. apríl kl. 20 í sal félagsins Mörkinni 6. Þá sýna Ferðafélag Fljótsdalshéraðs, Ferðafélag Fjarðarmanna og Ferðafélagið Norðurslóð myndir af sínum starfssvæðum og úr ferðum félaganna. Aðgangseyrir kr. 500, innifalið kaffi og kleinur. Allir velkomnir.
Ferðafélagið Norðurslóð sýnir myndir af félagssvæði sínu sem nær frá Kelduhverfi austur á Bakkafjörð. Aðallega er um að ræða myndir úr tveimur sumarleyfisferðum félagsins sl. sumar, annarri um Langanes og hins vegar um Öxarfjörð. Báðar ferðirnar eru aftur á dagskrá á komandi sumri. Leikurinn berst líka út á Melrakkasléttu og austur á Bakkafjörð.