Næsta örganga 29. apríl

Næsta örganga um nágrenni Grafarholts verður miðvikudaginn 29. apríl. Gengið verður frá hitaveitugeymunum eftir göngustígnum sunnan byggðarinnar að Sæmundarskóla - með Reynisvatni norðanverðu - um austurhlíðar Reynisvatnsássins - yfir ásinn niður að Reynisvatni austanverðu.  Þeir sem stytta vilja gönguna geta bæst í hópinn við Sæmundarskóla u.þ.b. kl 19:20.   Skólinn er sem næst á horni Gvendargeisla og Biskupsgötu - austast í byggðinni.

Gangan hefst kl 19:00.  Göngustjórar verða Guðlaug Sveinbjarnardóttir og Höskuldur Jónsson. Gengið verður hvernig sem viðrar. Gönguleiðin liggur um stíga.  Hafið góða skó.

HJ