Nám í ferðamálafræði í Hólaskóla

Ágæti viðtakandi!

Mig langar til að vekja athygli félaga í Ferðafélagi Íslands á námi sem boðið er í ferðamáladeild Háskólans á Hólum. Við teljum að námið hér og lífið á Hólum höfði til fólks sem hefur áhuga á útivist og ýmsri afþreyingu sem tengist náttúrunni. Nú þegar hefur björgunarsveitarfólk, leiðsögumenn, fararstjórar, ferða- og fjallafólk sótt námið og líkað vel. Það er ekki síst fyrir þeirra hvatningu að ég hef samband við ykkur.

Í ferðamáladeild Hólaskóla er boðið upp á nám til BA-gráðu í ferðamálafræði þar sem áhersla er lögð á afþreyingu, náttúru og menningu. Einnig er hægt að taka eins árs nám og öðlast þá diplómagráðu í ferðamálafræði ásamt landvarðarréttindum og staðarvarðarréttindum. Möguleiki er á að taka diplómaárið í fjarnámi.

Námið er bæði fræðilegt og verklegt. Hagnýt verkefni miðuð við raunverulegar aðstæður eru stór hluti námsins og nýtast vel þegar út í atvinnulífið er komið. Í náminu er fjallað um afþreyingu, útivist og upplifun, leiðsögn, umhverfi ferðamanna, mat, gistingu, menningu, náttúru, sem og ferðafræði, bókhald, aðferðafræði, rekstrarfræði og markaðsfræði.

Í Skagafirði eru möguleikar á margs konar útivist. Stutt er í skíðasvæðið í Tindastóli, í Skagafirði er hefð fyrir fljótasiglingum í Jökulánum, ekki þarf að fara langt í ísklifur og Tröllaskaginn er gósenland fjallamannsins.

Nærumhverfi Hóla er fallegt og þar eru margar gönguleiðir. Þetta umhverfi er beint nýtt í tengslum við námið en einnig er ljóst að það er hægt að hafa nóg að gera á milli þess sem legið er yfir bókum!

Mig langar að hvetja ykkur félaga í Ferðafélagi Íslands sem hafið áhuga á að gera áhugamál ykkar að atvinnu að íhuga þann möguleika að koma til Hóla.

Á vef skólans eru ítarlegar upplýsingar og námskeiðslýsingar sem segja ykkur enn meira um námið og lífið á Hólum. Vefslóð Hólaskóla er www.holar.is

Nánari upplýsingar veitir Guðrún Þóra Gunnarsdóttir deildarstjóri (ggunn@holar.is). Einnig eru nemendur til í spjall.

Með kærri kveðju frá Hólum,

Sólrún Harðardóttir (solrun@holar.is)

-----

~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~

Sólrún Harðardóttir

http://www.holar.is/

vs: 455-6300 hs: 453-6582

Prestssæti 12, HÓLUM Í HJALTADAL

~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~