Nokkur sæti laus! Jónsmessa og Jóga á Hornströndum - Hlöðuvík

Fararstjóri: Sigrún Valbergsdóttir. Jógakennari: Ásta Böðvarsdóttir

Hámarksfjöldi: 18 manns í hús, en auk þess er gott tjaldstæði í boði með góðri aðstöðu.

Farþegar koma til Ísafjarðar í tæka tíð.

1. dagur, miðvikudagur: Siglt frá Ísafirði miðvikudaginn 23. júní kl. 14.00 til Hlöðuvíkur.

2.-5. dagur: Dvalið í Hlöðuvík við göngur, jógaæfingar og slökun, glens og gaman.

6. dagur: Siglt mánudaginn 28. júní til Ísafjarðar.

Verð: 49.000 / 54.000

Innifalið: Gisting, sigling, jóga og fararstjórn. Sameiginlegur matur er ekki innifalinn í verði.