Ný skilti FÍ við Öræfajökul og Fimmvörðuháls með stuðningi Menningarsjóðs Valitors

Í sumar hafa verið tekin í notkun ný og glæsileg skilti við upphaf  gönguleiðanna á Hvannadalshnúk og Fimmvörðuháls sem Ferðafélag Íslands með fulltingi Menningarsjóðs Valitors hefur sett upp.  Báðar gönguleiðirnar njóta mikilla vinsælda og er Fimmvörðuháls önnur vinsælasa gönguleið landsins á eftir Laugaveginum og vorferðir á Hvannadalshnúk hafa verið í tísku hjá landanum undanfarin ár.

Um er að ræða framhaldssamstarf af skiltagerð sem FÍ með stuðningi Menningarsjóðs Visa gerðu af Laugaveginum 2007.  Þessi skilti og merkingu gönguleiða á Íslandi og nýjung í skiltagerð hér á landi. Skiltin eru hönnuð þannig að í grunninn eru þrívíddarmyndir af landslaginu sem síðan eru málaðar af Ómari Svavarssyni  listamanni og loks eru færðar inn upplýsingar um örnefni, skála og fleira gagnlegt á kortið. 

Á skiltunum eru leiðarlýsingar af leiðinni á Hvannadalshnúk og Fimmvörðuháls á tveimur tungumálum, auk helstu upplýsinga um öryggisþætti, búnað og fleiri atriði sem ferðamenn varðar um á þessari tilkomumiklu gönguleið. 

Bætt ferðamenning – aukið öryggi

Ólafur Örn Haraldsson, forseti Ferðafélagsins, er mjög ánægður með þetta framtak. “Uppsetning þessara vönduðu skilta er þáttur í þeirri stefnu félagsins að auka  upplýsingaþjónustu við ferðamenn og bæta öryggi þeirra, en reynslan sýnir að þessi gullfallega leið getur verið varasöm ef ekki er rétt að farið.” Ólafur bendir á að tilkoma skiltanna sé líka innlegg í bætta ferðamenningu sem Ferðafélagið hafi unnið ötullega að á löngum ferli. “Við viljum gera okkar til að efla ferðamenningu og ferðagleði Íslendinga og annarra ferðalanga og vekja fólk til aukinnar vitundar um töfra landsins. Þar gegna vandaðar og aðgengilegar upplýsingar veigamiklu hlutverki. Ég vil sérstaklega þakka Menningarsjóði VISA Íslands, sem kostaði hönnun og gerð skiltanna, afar myndarlegan stuðning en án hans hefði verið ógerlegt að vanda svo vel til verka.”