Nýr ritstjóri tekur við heimasíðu FÍ

Örlygur Steinn Sigurjónsson blaðamaður hefur verið ráðinn ritstjóri á heimasíðu FÍ.  Örlygur starfaði lengi sem blaðamaður á Morgunblaðinu og hefur lengi stundað fjallamennsku og ferðalög um Ísland.   Örlygur er einnig starfandi fararstjóri hjá Ferðafélaginu og nýkominn af Hrútfjallstindum og Þverártindsegg, auk þess sem hann er í fararstjórahópi FÍ á Hvannadalshnúk.

,,Það verður áhugavert að vinna ferðafréttir, afla efnis hjá ferðalöngum, hvort sem það er í lengri eða skemmri ferðum, um jökla eða grónar grundir, segir Örlygur. ,,Það er greinilegt að íslendingar eru farnir að sækja meira í ferðalög innanlands og af reynslu minni sem fararstjóri sé ég að fólk er almennt vel búið og áhugasamt um að kynnast nýjum leiðum og svæðum.

Heimasíða FÍ mun á næstunni taka breytingum, bæði hvað varðar efnistök og útlit.