Nýtt göngukort hjá FÍ

Út er komið nýtt gönguleiðakort um gönguleiðir í Þórsmörk og Goðalandi, útgefið af Ferðafélagi Ísland og Útivist. Um er að ræða endurútgáfu af göngukorti sem fyrst kom út 2007 en hefur nú verið endurnýjað og uppfært.  Veg og vanda að göngukortinu höfðu þeir Leifur Þorsteinsson fyrir hönd FÍ og Óli Þór Hilmarsson fyrir hönd Útivistar.

 

 

Göngukortið fæst á skrifstofum FÍ og Útivistar og þá mun kortið fást bæði í Langadal og Básum í sumar, sem og í Húsadal.