Nýtt verkefni er að fara af stað hjá FÍ sem kallast FÍ Eldri og heldri göngur.
Það er í umsjón Heiðrúnar Ólafsdóttur en gengið verður tvisvar í viku, á mánudögum og miðvikudögum. Mánudagsgöngurnar eru alltaf í Elliðaárdalnum en á miðvikudögum er gengið á mismunandi stöðum. Fyrsta gangan er mánudaginn 10. febrúar og sú síðasta 6. maí.
Þátttaka er ókeypis fyrir félaga í Ferðafélaginu en aðrir geta tekið þátt gegn vægu gjaldi.
Nánari upplýsingar um FÍ Eldri og heldri göngur