Örganga miðvikudaginn 13. maí kl. 19. Fjórða örgangan í Grafarholti.

Örganga

Fjórða örgangan  verður miðvikudaginn 13. maí.  Gengið verður frá hitaveitugeymunum á Grafarholtinu eftir göngustígum sunnan byggðarinnar og upp Leirdalinn.  Þar verður vikið frá stígnum og gengið um óraskað land fram á Nónás. Þaðan haldið til baka inn á stíginn, gengið austur Vellina og inn á stíg sem liggur niður að Reynisvatni.  Við vatnið er haldið til vinstri og fylgt stígum að mestu að hitaveitugeymunum.

Veður hindrar ekki för. Notið góða skó. Gönguhraða verður stillt í hóf.
Göngustjórar verða Guðlaug Sveinbjarnardóttir og Höskuldur Jónsson