Örgöngur 16. maí

Á hverjum miðvikudegi í maí, er farið í gönguferðir um Grafarholt og nágrenni þess.  Þátttakendur safnast saman við hitaveitugeymana og þaðan er gengið í 1 ½ - 2 tíma um nærliggjandi holt og heiðar.  Ferðalok eru við geymana.  Ganga hefst  kl 19.  Ferðir sem þessar hafa verið farnar í maí undanfarin 3 ár og eru þátttakendur orðnir tæplega 500. 

Þótt aðallega sé gengið á stígum, liggur leið að nokkru um móa og  því ráðlegt að vera í góðum skóm.  Þetta eru ekki hraðgöngur.  Örgöngur eru aldrei felldar niður vegna veðurs. Klæðið ykkur í samræmi við veðurútlit.

Göngustjórar eru Guðlaug Sveinbjarnardóttir og Höskuldur Jónsson

Þriðja gangan er miðvikudaginn 16. maí.  Leið: Gengið um stíginn sem liggur samhliða rörunum frá Nesjavöllum. Þaðan er haldið um stíg sem liggur um Selbrekkur að Rauðavatni – þaðan vestur með vatninu og upp Lyngdalinn – þaðan í Skálina og niður á göngustíg sem liggur um golfvöllinn.