Örgöngur 30. maí

Á hverjum miðvikudegi í maí, er farið í gönguferðir um Grafarholt og nágrenni þess.  Þátttakendur safnast saman við hitaveitugeymana og þaðan er gengið í 1 ½ - 2 tíma um nærliggjandi holt og heiðar.  Ferðalok eru við geymana.  Ganga hefst  kl 19.  Ferðir sem þessar hafa verið farnar í maí undanfarin 3 ár og eru þátttakendur orðnir tæplega 500. 

Þótt aðallega sé gengið á stígum, liggur leið að nokkru um móa og  því ráðlegt að vera í góðum skóm.  Þetta eru ekki hraðgöngur.  Örgöngur eru aldrei felldar niður vegna veðurs. Klæðið ykkur í samræmi við veðurútlit.

Göngustjórar eru Guðlaug Sveinbjarnardóttir og Höskuldur Jónsson

Fimmta  og síðasta gangan um nágrenni Grafarholts á þessu vori verður miðvikudag 30. maí.  Lagt verður af stað frá vatnsgeymunum kl: 19.  Leið: Gengið á stíg sem liggur samhliða Kristnibraut og undir Vesturlandsveg hjá Grafarholtsbænum.  Eftir stutta viðdvöl hjá Grásteini er Grafarlæknum fylgt og sveigt inn á gömlu heimreiðina að Keldum.  Gengið um Keldnahlaðið og norður á stíg sem liggur upp á Keldnaholtið. Staðnæmst verður við Keldnakot en svo haldið þaðan inn á stíg er liggur að Vesturlandsvegi. Ráðlegt er að vera í  góðum skóm.  Þetta er ekki hraðganga.  Ætlaðir eru 1 ½ - 2 klukkustundir til ferðarinnar.  Örgöngur eru aldrei felldar niður vegna veðurs.