Örgöngur - 9. maí

Örgöngur Ferðafélags Íslands              

Á hverjum miðvikudegi í maí, er farið í gönguferðir um Grafarholt og nágrenni þess.  Þátttakendur safnast saman við hitaveitugeymana og þaðan er gengið í 1 ½ - 2 tíma um nærliggjandi holt og heiðar.  Ferðalok eru við geymana.  Ganga hefst  kl 19.  Ferðir sem þessar hafa verið farnar í maí undanfarin 3 ár og eru þátttakendur orðnir samtals um 400. 

Þótt aðallega sé gengið á stígum, liggur leið að nokkru um móa og  því ráðlegt að vera í góðum gönguskóm.  Þetta eru ekki hraðgöngur.  Örgöngur eru aldrei felldar niður vegna veðurs. Klæðið ykkur í samræmi við veðurútlit.

Göngustjórar eru Guðlaug Sveinbjarnardóttir og Höskuldur Jónsson

Önnur gangan er miðvikudaginn 9. maí.  Leið: Gengið um stíginn sem liggur að Reynisvatni og norðan þess.  Þá er farið undir Reynisvatnsveginn og inn á stíg ofan nýja hverfisins sem er kennt við Haukadalsmenn. Stígurinn liggur austan í Reynisvatnsásnum og upp á hann – þaðan niður Klofabrekkur að Reynisvatni og gengið til baka um suðurbakka vatnsins og inn á malbikaðan stíg er liggur að vatnsgeymunum.