Örgöngur Ferðafélagsins

Önnur gangan um nágrenni Grafarholts verður miðvikudaginn 11.maí. Lagt verður af stað frá vatnsgeymunum kl:19.   Leið: Gengið um malarstíginn, sem liggur upp Leirdalsklauf, og inn á skógarstíg sem liggur utan í Nónás.  Þá farið inn á Reynivatnstíg sem liggur sunnan vatnsins og síðan inn á stíg er liggur upp á Velli – gamla skotsvæðið. Frá Völlum er genginn stígur, sem liggur upp á Grenás sunnan Leirdals – þaðan niður í Leirdal og að geymunum. Leiðin liggur að nokkru utan stíga og því ráðlegt að vera í góðum gönguskóm.  Þetta er ekki hraðganga.  Ætlaðar eru    1 ½ - 2 klukkustundir til ferðarinnar.  Örgöngur eru aldrei felldar niður vegna veðurs.

Fararstjórar: Guðlaug Sveinbjarnardóttir og Höskuldur Jónsson