Örgöngur Ferðafélagsins

Örgöngur Ferðafélagsins 

 

Þriðja gangan um nágrenni Grafarholts verður miðvikudag 18. maí.  Lagt verður af stað frá vatnsgeymunum kl: 19.  Leið: Gengið um um veg sem liggur samhliða rörunum frá Nesjavöllum.  Þaðan haldið stíg sem liggur um Selbrekkur að Rauðavatni – þaðan vestur með vatninu og upp Lyngdalinn – Þaðan um Skálina og á veginn meðfram hitaveiturörinu.  Leiðin er að nokkru utan stíga og því ráðlegt að vera í góðum gönguskóm.  Þetta er ekki hraðganga.  Ætlaðir eru 1 ½ - 2 klukkustundir til ferðarinnar.  Örgöngur eru aldrei felldar niður vegna veðurs.

Fararstjórar: Guðlaug Sveinbjarnardóttir og Höskuldur Jónsson