Fjallað verður um sögustaði og örnefni við Ísafjarðardjúp á fyrirlestri á vegum Nafnfræðifélagsins næsta laugardag, 24. mars.
Það er Dr. Ólína Þorvarðardóttir sem flytur erindi sem nefnist Við Djúpið blátt og byggir á samnefndri Árbók Ferðafélags Íslands á síðasta ári, 2017.
Í fyrirlestrinum er fjallað um sögustaði við Ísafjarðardjúp, brugðið upp myndum af umhverfinu og sagt frá örnefnum sem tengjast atburðum, einstaklingum og sögum.
Fyrirlesturinn er haldinn í stofu 106 í Odda, húsi Háskóla Íslands og hefst kl. 13:15.
Allir eru velkomnir.