Öryggisreglur fyrir vetrarferðir

Ferðafélag Íslands hefur í samvinnu við VÍS unnið að áhættumati fyrir fjölmargar gönguleiðir á Íslandi og er þeirri vinnu haldið áfram. Vinnan felst í því að kortleggja þær hættur sem við er að etja, sem geta auðvitað verið fjölmargar, sérstaklega þegar ferðast er að vetrarlagi.

Helstu áhættur í vetrarferðamennsku fyrir göngufólk eru þessar:

  1. Hætta á að hrasa – renna í hálku
  2. Hætta á að renna í fjalllendi í harðfæri – hálku
  3. Hætta á að hrapa fram af fjallsbrúnum / klettum
  4. Hætta á að villast – verða úti
  5. Hætta á að lenda í óveðri – verða úti
  6. Hætta á að verða blautur – kaldur – krókna
  7. Hætta á að falla í gegnum ís á vatni
  8. Hætta á að lenda í snjóflóði / aurskriðum
  9. Hætta á að verða sambandslaus
  10. Hætta á að lenda í vandræðum vegna þess að maður er vanbúinn / illa búinn
  11. Hætta á að vanmeta aðstæður / ofmeta sjálfan sig

Hér hafa verið nefndar aðstæður sem göngufólk getur á hættu á að lenda í þegar vetrarfjallamennska er stunduð. Þetta er ekki tæmandi listi yfir hættulegar aðstæður og mikilvægt er að undirbúa sig vandlega fyrir hverja ferð og meðal annars með því að:

  1. Kanna aðstæður á leiðinni, t.d. snjóalög, hálku, aurbleytu eða annað og ekki fara í ferðina nema aðstæður séu góðar.
  2. Fylgjast með veðurspá fyrir ferð – sé veðurspá slæm og gert ráð fyrir meira vindhraða en 18 metrum á sekúndu er rétt á fresta ferð eða breyta. Rétt er að hafa í huga að veður breytist hér á landi á örskammri stundu. Þá er veður til fjalla yfirleitt mun verra en í byggð.
  3. Athuga hvort snjóflóðahætta sé á viðkomandi leið og tryggja að þátttakendur eigi ekki á hættu að lenda í snjóflóði. Gott er að kanna spár á www.vedur.is
  4. Mikilvægt er að fara yfir búnað sem þarf til hverrar ferðar miðað við aðstæður og tryggja að allir séu rétt búnir.
  5. Nauðsynlegur búnaður í allar vetrarferðir eru: Nærfatnaður úr ull er bestur eða gerviefnum, gott millilag t.d. flís eða stretch og góður hlífðarfatnaður, jakki og buxur, vind og vatnsheldur. Þá er nauðsynlegt að vera með húfu og vettlinga. Góðir gönguskór eru nauðsynlegir, helst háir, með góðri styrkingu yfir ökla og grófum botni. Gott ef hafa hálkubrodda en rétt að hafa í huga að þeir duga skammt í krefjandi aðstæðum og geta veitt falskt öryggi. Ef leið liggur um brattlendi eða klettabelti er nauðsynlegt að hafa með ísbrodda. Ef farið er í ísbrodda þá þarf viðkomandi að hafa ísexi í hendi.
  6. Mikilvægt er að hafa gps tæki og kunnáttu til að vinna með tækið.
  7. Göngustafir eru góðir og veita stuðning í ákveðnum aðstæðum.
  8. Nauðsynlegt er að hafa hlaðinn gsm síma með í ferð.
  9. Aldrei skal vera einn á ferð í vetraraðstæðum.
  10. Láttu vita af ferðum þínum og áætlaða heimkomu. Gott er að nota safetravel.is
  11. Gott er að hafa bakpoka með auka hlífðarfatnaði, sjúkrapoka, nestisbita og heitt á brúsa.
  12. Gott er að kaldstarta sem kallað er, þ.e. að vera ekki of mikið klæddur í upphafi og hafa frekar fatnað í bakpoka. Göngumaður er mjög fljótur að ganga sér til hita en um leið þarf að varast að svitna. Blaut föt og kuldi eru hættuleg göngumanni. Þess vegna er mikilvægt að vera í fatnaði sem andar eða tekur ekki í sig raka.
  13. Gott er að lesa og fræðast um vetrarfjallamennsku og auka þannig þekkingu sína. Eins er gott að læra af reyndari fjallamönnum og byggja upp reynslu sína og þekkingu. Hægt er sækja námskeið um vetrarfjallamennsku hjá Ferðafélagi Íslands og fleiri aðilum.

Hér má skoða áhættumat gönguleiða.