Sæludagar í Hlöðuvík 7. - 12. júlí - 4 laus pláss

Ferðafélag  Íslands

SÆLUDAGAR  Í  HLÖÐUVÍK 

                       7. -  12.  JÚLÍ  2010   

                                 Fararstjóri Guðmundur  Hallvarðsson

 

                                           

    Ítarlisti 

Ferðalangar koma til Ísafjarðar þriðjudaginn 6. júlí og gista þar á eigin vegum. miðvikudaginn 7. júlí siglum við strax kl. 9.00 um morguninn með Hafsteini og Kiddý til Hlöðuvíkur. Farþegar mæti við afgreiðslu Sjóferða Hafsteins og Kiddýjar við smábátahöfnina og æskilegt er að vera mættur 15 mínútum fyrir brottfarar-tíma. Siglingin til Hlöðuvíkur tekur 2 – 3 klst. Og er margt að sjá á leiðini. Eftir að ferðahópurinn hefur tekið land í Hlöðuvík hefst nokkur vinna við að koma farangri í hús, koma skipulagi á matarbirgðir ferðahópsins, koma sér fyrir í húsinu og njóta fyrstu kaffiuppáhellingar, ásamt nýju brauði úr Gamla bakaríinu. Að þessu loknu er ekki ólíklegt að tekin verði upphitunarganga svona til að liðka sig fyrir komandi gönguátök. Hinsvegar á þessi fyrsti dagur ferðarinar að vera nokkuð frjáls.Í Hlöðuvík er svo dvalið til 21. júlí. Siglt til baka þann 12. júlí kl. 11.00 og komið þannig vel tímanlega fyrir kvöldflug frá Ísafirði til Reykjavíkur.  Gistiaðstaða í Hlöðuvík

Þessi ferð í Hlöðuvík byggist á því að dvalið er í sömu bækistöð alla ferðina og gengið út frá henni. Gist er í húsum og tjöldum fyrir þá sem það vilja.  í húsunum er svefnpláss fyrir 30 manns. Svefnloft er uppi og tvö rúmstæði eru niðri. Eins má flytja dýnur niður, en nægar dýnur eru í húsunum. Í húsunum er vatnssalerni og handlaug. Eldunartæki í húsunum eru tvennskonar. Annarsvegar eru það eldavélar, sem kynntar eru með rekavið. Hinsvegar eru það  gastæki, þ.e. 5 og 4 hellu borð sem notuð eru til eldamennsku. Öll önnur tæki, sem nauðsynleg eru til eldamennsku s.s. leirtau og hnífapör eru í nægu magni í húsunum. Í Hlöðuvík er einnig ágætis aðstaða  fyrir tjaldbúskap, en tjaldbúar njóta sama aðgangs og aðrir að þjónustu húsana, nema yfir blánóttina. Til hliðar við húsið er búið að koma upp litlu húsi með hreinlætis og salernisaðstöðu, sem er sérstaklega ætluð tjaldbúum, en þar er einnig útivaskur. Í þessu salernishúsi er einnig hægt að komast í sturtu, sem er hituð með gasi, og eru afnot af henni innifalin í fargjaldinu fyrir ferðahópa FÍ. Fyrir nokkrum árum var byggt svonefnt þurkhús í Hlöðuvík til að þurka blaut föt, geyma gönguskó og bakpoka  og ýmsan annan farangur Síðan má bæta því við, að í Hlöðuvík er komið eitt merkilegasta útigrill norðan “ Alpafjalla “, hlaðið úr sjávargrjóti, en sjón er sögu ríkari.  

Sameiginlegur matur

Í þessari ferð verður sameiginlegur matur bæði morgunmatur og heitur kvöldmatur, sem verður sérstaklega á vegum hópsins, en ekki innifalið í fargjaldi ferðarinnar. Það hefur komist hefð á þennann hátt í Hornstrandaferðum FÍ í yfir áratug og skapað mikla ánægju meðal Hornstrandafara FÍ. Þessi sameiginlegi matur stendur saman af morgunmat, sem inniheldur hafragraut og súrmjólk, brauð, álegg og ávexti og af þessu morgunverðarborði útbúa síðan ferðalangar göngunesti dagsins. Kaffi, te og heitur súkkilaðidrykkur er bæði kvölds og morgna. Í lok hvers göngudags er síðan á boðstólum heitur kvöldverður. Snarl af ýmsu tagi s.s. kex, súkkulaði, rúsínur, harðfiskur, súkkulaðidrykkir, Nes-kaffi, orkudrykkir eða ýmiskonar safar, sér hver um fyrir sig eftir þörfum og smekk. Ferðalangar hjálpast að við undirbúning og frágang máltíða. Á Undirbúningsfundi mun fararstjóri fara yfir þessi mál og skipa nefnd til að annast matarinnkaupin og mun sú nefnd jafnframt skifta ferðahópnum upp í eldhúshópa.    

Hvað á að vera í Dagsgöngupokanum ?

Það eina sem ferðalangar þurfa að bera á hverjum degi í þessari ferð er góður dagsgöngupoki. Það sem í dagspokanum þarf að vera er m.a: Nesti til dagsins og ágætt að hafa það í nestisboxi. Í nestisboxinu er einnig ágætt að hafa í bréfum heita “instant” drykki s.s. súkkulaðidrykki, súpur eða orkudrykki. Hitabrúsi (stálbrúsi) er lífsnauðsynlegur og inniheldur heitt vatn, sem hitað er að morgni hvers dags. Í dagspokanum er einnig gott að hafa fyrirferðalítið einangrunarplast til að sitja á, en slíkt reynist oft vel þegar blautt er á. Vettlinga, húfu (lambúshettu), regnföt, auka sokka, sólvörn og lágmarks sjúkravörur eins og plástra á fætur er einnig nauðsynlegt að hafa í dagspokanum. Útbúnaði verður að öðru leiti ekki gerð tæmandi skil hér en bennt á að nauðsynlegt er að hafa góða gönguskó sem þola bleytu. Eins er nauðsynlegt að muna  eftir vaðskónum. þeir verða að vera í dagspokanum, því að yfirleitt er vaðið á hverjum degi. Vaðskór geta verið með ýmsu móti, slitnir strigaskór, Sandalar, laxapokar eða sérstakir vaðskór úr blautbúningsefni sk. seglbrettaskór eða kafaraskór. Að síðustu er ekki úr vegi að minna á legghlífar og göngustafi.Göngustafir hjálpa mikið til að jafna þunga, hlífa hnjám og koma að góðum notum þegar vaða þarf ár. Um annan útbúnað verður svo rætt á sérstökum undirbúningsfundi fyrir ferðina. 

Að lesa sér til fyrir ferðina

Til undirbúnings ferðinni er gott að vera búin að lesa sér til. Árbók FÍ frá 1994 “Ystu strandir norðan djúps” er ómissandi lesning fyrir þá sem hyggja á ferðalög á þessar slóðir. Hornstrendingabók Þórleifs Bjarnasonar er einnig ómissandi lesning. Einnig má benda á árbók FÍ frá 1949 um Norður Ísafjarðarsýslu og vestfjarðabók Hjálmars R. Bárðasonar frá 1994. Fyrir áhugafólk um gróðurfar er gagnlegt að hafa meðferðis Ferðaflóru eða aðra plöntugreiningarbók.

  

Hér á eftir eru settar fram hugmyndir um mögulegar gönguferðir í ferðini, bæði lengri og skemmri gönguferðir.

 Lengri gönguferðir: 1.      Ganga á Hælavíkurbjarg. Leiðin liggur upp bæjarfjallið í Hlöðuvík, Skálarkamb (349 m.y.s.). Þaðan niður í Hælavík og síðan upp á Hælavíkurbjarg. Í Hælavíkurbjargi er ein mesta fuglabyggð í heimi. Síðan höldum við eftir  endilöngu  bjarginu á hæsta tind þess, Festaskarðatind (530 m.y.s.). Síðan er reynt að halda hæð yfir á Skálarkamb. Þetta er nokkuð mikil ganga og talsvert mikið á fótinn. Vegalengd  14 – 16 km. og göngutími  8 – 10 klst. 2.      Ganga í Rekavík bak Höfn, í Hvannadal og á Langakamb. Við hefjum gönguna með því að ganga aftur á bæjarfjallið Skálarkamb. Þaðan liggur leiðin í u.þ.b. 200 m. hæð yfir Hælavíkini og út í skarð er nefnist Atlaskarð (327 m.y.s.). Í Atlaskarði er Atladys, sem vissara þykir að henda þremur steinum í. Úr Atlaskarði liggur leiðin niður í Rekavík bak Höfn. Þaðan liggur leiðin eftir einstigi í hlíð Rekavíkurfjalls og út í Hvannadal og þaðan niður á ægifagrann berggang, sem liggur út í sjó og heitir Langikambur, en þar komast menn svo sannarlega í annann heim, því þar ríkir heimur bjargfuglsins. Vegalengd  20 – 25 km og göngutími 8 – 10 klst. 3.      Ganga í Hlöðuvíkurskarð (472 m.y.s.) og fjallahringurinn yfir á Skálarkamb. Þetta er afar skemmtileg ganga í góðu veðri. Gengið er inn Hlöðuvíkina og upp í Hlöðuvíkurskarð. Úr Hlöðuvíkurskarði sést vel yfir Veiðileysufjörð, sem er einn af Jökulfjörðunum. Úr Hlöðuvíkurskarði er síðan haldið upp á eystri axlir og gengin fjallahringurinn yfir á Skálarkamb. Farið er hjá Jökladölum, Jökladalshorni, fjallinu Þórishorni og komið síðast niður Skálarkambinn.Í góðu veðri er gýfurlega mnikið útsýni þarna af fjallahringnum bæði í austur og vestur. Vegalengd 12 – 15 km og göngutími 6 – 7 klst. 4.      Ganga í Hlöðuvíkurskarð og að Steinólfsstöðum í Veiðileysufirði. Þessi ganga er lík göngu nr. 3, nema í staðinn fyrir fjallahringinn, er nú gengið niður í Veiðileysufjörð að Steinólfsstöðum. Vegalengd 12 – 15 km og göngutími 7 – 9 klst. 5.      Ganga í Kjaransvíkurskarð (426 m.y.s.) Þessi ganga liggur út Hlöðuvíkina, yfir Hlöðuvíkurós, sem þarf að vaða og fyrir fjallið Álfsfell (584 m.y.s.) og út í Kjaransvík. Úr Kjaransvík liggur svo vel vörðuð leið í hækkandi hjöllum upp í Kjaransvíkurskarð. Úr Kjaransvíkurskarði er útsýni yfir Hesteyrarfjörð og ef veður er bjart má sjá út Ísafjarðardjúpið til Bolungavíkur. Vegalengd 10 –14 km og göngutími 6 – 7 klst. Ganga í Almenningaskarð ( 466 m.y.s. ) og í Almenninga vestari. Leiðin liggur eins og í göngu 5 með Álfsfelli og út í Kjaransvík, en í stað þess að ganga upp Kjaransvíkina höldum við áfram og stefnum á Almenningaskarð. Úr Almenningaskarði höldum við síðan niður á Almenninga og út að sk. Kyrfi. Vegalengd 12 – 15 km og göngutími 6 – 8 klst.   6.      Skemmri  gönguleiðir 1.       Fjöruganga á langakamb og Teigkamb. Gengið er út í Kjaransvík og fylgt ströndini út að Langakamb og Teigkamb. Teigkambur er klettur, sem stendur út undir fjallinu Kjalarárnúp. Göngutími 3 - 5 klst. 2.       Ganga í Kjaransvík og að Grásteini. Grásteinn er gamall áningastaður. Göngutími 3 - 4 klst. 3.       Ganga í Ólafsdal og Indriði draugur heimsóttur. Göngutími 4 – 5 klst. 4.       Hringganga um Hlöðuvíkina 5.       Kvöldganga að Hælavíkurófæru