Sæluhúsið Valgeirsstaðir

Hús Ferðafélags Íslands í Norðurfirði nefnist Valgeirsstaðir og er gamalt íbúðarhús í góðu ástandi. Húsið stendur við botn Norðurfjarðar, rétt ofan við fallega sandfjöru.

Reynir Traustason, sem er best þekktur sem blaðamaður, er skálavörður á Valgeirsstöðum. „Ég var skálavörður hér í smátíma í fyrra og leist svo vel á mig hér að ég ákvað að vera hér í allt sumar. Ég er annars vegar að passa upp á sæluhúsið, taka á móti gestum og þrífa og hins vegar með skipulagðar gönguferðir á fjöllin hér í kring ef einhver hefur áhuga.

Fyrsta skrefið

Að sögn Reynis er hann ekki hættur í blaðamennsku og í hlutastarfi hjá Stundinni samhliða því sem hann er að skrifa bók um fjallafólk og firnindi eins og hann orðar það.

Á veturna stendur Reynir fyrir göngum á vegum Ferðafélags Íslands sem kallast Fyrsta skrefið.

„Dagskráin hefst um áramótin og endar í apríl. Þetta er gönguþjálfun fyrir fólk sem langar að koma sér í form og ganga á fjöll. Markmið síðasta hóps var að ganga á Snæfellsjökul í lok apríl og það gekk vel og rúmlega þrjátíu manns sem komust á toppinn. Sami hópur er svo væntanlegur hingað í sumar til að ganga á fjöll og um Árneshrepp. Ég verð svo með annað prógram sem hefst í haust og kallast Næsta skrefið.“

Tuttugu manns í rúmum

„Sæluhús Ferðafélagsins í Norðurfirði er gott hús á tveimur hæðum sem tekur tuttugu manns. Á efri hæð eru fjögur svefnherbergi sem rúma frá einum og upp í fjóra gesti en á þeirri neðri eru fjögur herbergi sem taka frá þremur upp í sex gesti. Í húsinu er borðstofa og vel búið eldhús auk sturtu og tveggja salerna,“ segir Reynir.

Í tíu mínútna göngufæri frá húsinu er verslun og sundlaug er á Krossnesi, ekki ýkja langt í burtu. Fjölmargar spennandi gönguleiðir eru í nágrenni við sæluhúsið. Má þar nefna göngu á Töflu, Kálfatinda, Munaðarnesfjall og Krossnesfjall. Einnig eru hægt að fara í lengri gönguferðir yfir í Ingólfsfjörð og kringum Strút.

Greinin birtist í Bændablaðinu 5. júlí.

ingolfsfj.jpg
Bátar við naust í Ingólfsfirði. Kálfatindar í baksýn til hægri