Umhverfisstofnun, Vatnajökulsþjóðgarður og Landgræðslan standa fyrir málþingi um ábyrgar fjallahjólreiðar í náttúru Íslands á Hótel Selfossi 22. maí næstkomandi kl. 17:00-19:00.
Markmiðið með málþinginu er að ræða um fjallahjólreiðar á víðum grunni með sjónarmiði allra hagsmunaaðila og eiga samtal um ábyrgar hjólreiðar með tilliti til verndunar náttúru og upplifunar ferðamanna og útivistarfólks. Farið verður yfir mikilvægi þess að náttúruvernd, útivist og ferðaþjónusta vinni saman.
Fjallahjólreiðar eru stigvaxandi afþreying á Íslandi og þarf skipulag til að tryggja að náttúran verði ekki fyrir skaða en sjá einnig til þess að gott aðgengi verði fyrir hjólreiðafólk að hjólaleiðum í náttúru landsins.
Dagskrá
17:00-17:10 – Setning málþings
Magne Kvam, Ice Bike Adventure
17:10-17:20 – Áhrif fjallahjólreiða á gróður og jarðveg
Davíð Arnar Stefánsson, Landgræðslan
17:20-17:30 – Hjólreiðar í náttúru Íslands, lög og reglugerðir
Hákon Ásgeirsson, Umhverfisstofnun
17:30-17:40 – Hjólreiðar í Vatnajökulsþjóðgarði
Fanney Ásgeirsdóttir þjóðgarðsvörður
17:40-17:55 – Sjónarmið fjallahjólreiðafólks
Davíð Þór Sigurðsson, Fjallahjólabandalagið
17:55-18:10 – Fjallahjólreiðar í ferðaþjónustu
Rannveig Ólafsdóttir, Ice Bike Farm
18:10-18:20 – Kaffihlé
18:20-19:00 – Umræður og samtal
Fundarstjóri: Björn Helgi Barkarson, umhverfis- og auðlindaráðuneyti.
Sjá nánar viðburð á Facebook: https://www.facebook.com/events/2009651726011196/