Skálar loka á Laugaveginum

Skálum FÍ á Laugaveginum í Hrafntinnuskeri, Álftavatni, Hvanngili og í Botnum á Emstrum hefur nú verið lokað og skálaverðir komnir til byggða.  Skálaverðir eru áfram í Landmannalaugum og Þórsmörk og verða fram í október.  Af öryggisástæðum eru skálarnir þó ekki læstir og geta ferðamenn leitað þar í öryggt húsaskjól ef svo ber undir. Í október verður skálunum læst og þarf þá að nálgast lykla á skrifstofu félagsins.