Skálavörður til starfa í Landamannalagum fram yfir páska

Skálavörður mætir til starfa í Landmannalaugum 9. febrúar nk og mun sinna gæslu í skálanum um helgar fram yfir páska.  Ferðafélagið endurnýjaði í haust hitavatnsleiðslur í skála og verður í framhaldi af því heitt og kalt rennandi vatn í skálanum í vetur og boðið upp á vatnssalerni eftir að skálavörðurinn er mættur til starfa.

Ferðafélagið hefur áður haft skálaverði í skálum félagsins yfir vetrarmánuðina og eykur það þjónustu og þægindi fyrir ferðamenn til muna.  Komið er að skálanum heitum og heitt kaffi á könninni, auk þess sem skálavörður hefur tök á að fylgjast með ferðum ferðamanna og auka þannig öryggi þeirra.