Skálum FÍ lokað - vetraropnun

Skálum FÍ hefur nú verið lokað fyrir veturinn nema enn er opiði í Landmannalaugum og skálaverðir þar að störfum. Aðrir skálar félagsins hafa verið læstir og þarf að nálgast lykla á skrifstofu FÍ.  Ferðamenn sem eru á ferðinni nú á haustdögum og í vetur eru vinsamlega beðnir um að ganga vel um skála félagsins og taka þannig höndum saman um að aðkoma sé ávallt sem best.  Vetrarreglur í skálum FÍ eru:

  • Gangið vel um skálann og þrifið eftir ykkur áður en skálinn er yfirgefinn
  • Vinsamlega takið með ykkur allt rusl eftir heimsókn ykkar
  • Lokið vandlega öllum gluggum og hurðum við brottför
  • Hreyfið ekki við stillingum á ofnum eða vatnslögnum
  • Vinsamlega notið útikamra
  • Pantið gistingu og greiðið á skrifstofu FÍ
  • Skilið lyklum af skála strax eftir ferð

Góða ferð og ánægjulega dvöl í skálum félagsins.