Skemmtigöngur í skammdeginu

Mikil áhugi er á gönguferðum og útiveru um allt land.  Þessi áhugi hefur meðal annars komið fram í starfi hinna fjölmörgu ferðafélaga sem starfa um allt land. Finn má tenginu inn á heimasíður ferðafélaganna hér á heimasíðu FÍ.  Eins hafa orðið til fjölmargir gönguhópar sem standa fyrir gönguferðum og er einn þeirra gönguhópurinn Gunna fótalausa sem meðal annars stendur fyrir skemmtigöngum í skammdeginu.

Gönguklúbburinn Gunna fótalausa sem hefur höfuðstöðvar á Fésbókinni hyggst standa fyrir gönguferðum í nágrenni Hólmavíkur í hádeginu alla þriðjudaga til áramóta. Er öllum velkomið að slást í hópinn og rölta á vit ævintýranna, en hver ferð tekur um það bil klukkustund. Hugmyndin með skammdegisgöngunum er að stuðla að félagsskap, útvist og hreyfingu í skammdeginu. Á þriðjudaginn kemur verður gengið frá kirkjugarðinum við Hólmavík og lagt upp kl. 12:10. Gönguhópurinn heitir eftir Strandakonunni Guðrúnu Bjarnadóttir sem lenti ung í miklum hrakningum, en varð síðar víðfræg fyrir smíðar á skipum og búsáhöldum. Sjá nánar á www.strandir.is