Þingvallakirkja - Hvalvatn - Hvalfell - Glymur
Pálmasunnudagur 16. mars. Skíðaferð. Rúta.
Brottför frá Mörkinni 6 kl. 9. Göngutími 8 klst.
Fararstjórar: Páll Guðmundsson og Leifur Þorsteinsson
Farið með rútu frá Mörkinni 6. Ekið til Þingvalla og farið í stutta heimsókn þar. Síðan ekið upp Uxahryggjaleið og gengið á skíðum að Hvalvatni, á Hvalfell ef aðstæður leyfa og komið niður í Hvalfjörð þar sem rútan bíður.
Verð: 4000/6000
Innifalið: Rúta, farastjórn