Skíðaferð í Landmannalaugar

 

gonguskidahopur-300

Ferðafélagið stendur fyrir skíðaferð í Landmannalaugar um næstu helgi 9. - 11. febrúar. Lagt verður af stað frá Mörkinni 6 kl 18.00. Áætlað er að koma í Landmannalaugar um miðnætti. Á laugardegi og sunnudegi er gengið um nágrenni Landmannalauga á gönguskíðum, í Jökulgil og Brandsgil og hugsanlega í Hrafntinnusker ef aðstæður leyfa.

Haldið verður heim á leið á sunnudegi.

Verð í ferðina er kr. 10.000 / 12.000
Innifalið ferð og gisting

Fararstjóri er Páll Guðmundsson

Þáttakendur þurfa að taka með sér allan útbúnað, svefnpoka, nesti, bakpoka, hlífðarfatnað og vitaskuld skíðabúnað.

Skráning er á skrifstofu FÍ í síma 568 - 2533