Sólstöðu- og kökuganga á Esjuna

Sunnudaginn 21. desember verður kökuganga FÍ á Esjuna. Gengið verður upp Kerhólakamb og yfir á Þverfellshorn. Þátttakendur taka með sér kakó og kaffi og jólabakkelsi og deila með sér og valin verður besta jólasmákakan.

Lagt verður af stað frá Mörkinni 6 kl. 10.30, farið er á einkabílum og sameinast í bíla. Gengið verður frá Esjubergi og síðan ferjað á milli þegar niður er komið við Mógilsá.

Fararstjórar eru Þórhallur Ólafsson og Einar Karl Þórhallsson.

Þátttaka er ókeypis allir velkomnir