Stofnfundur Ferðafélagsdeildar á Þórshöfn.

Stofnfundur ferðafélagsdeildar

Til stendur að stofna ferðafélagsdeild fyrir Langanes, Bakkaflóa og Þistilfjörð.

Stofn- og kynningarfundur deildarinnar verður haldinn í Hafliðabúð á Þórshöfn, þriðjudagskvöldið 24. mars kl. 20:00-21:00.

Ólafur Örn Haraldsson forseti FÍ og Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri FÍ verða gestir á fundinum og kynna starfsemi félagsins.

Allir áhugasamir hvattir til að mæta, enda er áhugi og vilji heimamanna grunnforsenda þess að hægt sé að drífa þetta mikilvæga og skemmtilega starf í gang.

Frekari upplýsingar veitir:

Sif Jóhannesdóttir

Sími: 464 0417, 848 3586

e-mail: sif@atthing.is