Þjóðsögur, draugasögur, hjátrú og vikivaki

Með fróðleik í fararnesti - Þjóðsögur, draugasögur, hjátrú og vikivaki - hjólaferð
Hvenær hefst þessi viðburður:
8. september 2012 - 11:00 to 13:00
Nánari staðsetning:
Sólfarið við Sæbraut


Kristín Einarsdóttir
, aðjunkt í þjóðfræði við Félags- og mannvísindadeild, leiðir hjólaferð, með aðstoð Þjóðbrókar, félags þjóðfræðinema, þar sem þjóðsögur, draugasögur, hjátrú sjómanna, vikivaki og óvæntar uppákomur verða á vegi okkar. Lagt verður af stað frá Sólfarinu við Sæbraut og hjólað meðfram sjónum að Gróttu, þaðan með Ægisíðunni að Nauthólsvík, um Fossvogsdalinn, síðan Laugardalinn og endað við Sólfarið. Þátttakendur mæti á hjóli og er gert ráð fyrir að ferðin taki um tvær klukkustundir. Lagt verður af stað frá Sólfarinu kl. 11.

Háskóli Íslands og Ferðafélag Íslands halda áfram samstarfi sínu um gönguferðir sem efnt var til í tilefni aldarafmælis skólans 2011. Reynsla og þekking fararstjóra Ferðafélagsins og þekking kennara og vísindamanna Háskólans blandast saman í áhugaverðum gönguferðum og nú hjólaferðum um höfuðborgarsvæðið og næsta nágrenni þess. Ferðirnar verða fimm talsins og tekur hver um tvær klukkustundir. Þátttaka er ókeypis og allir eru velkomnir.
Markmiðið með samstarfinu er að vekja áhuga almennings á fræðslu og hollri útivist og fjölga valkostum í þeim efnum. Um leið er vakin athygli og vonandi áhugi á fjölbreyttri starfsemi Háskólans og Ferðafélagsins.

----------------------------
Næstu ferðir:

6. október kl. 11 - Helga Gottfreðsdóttir, dósent við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands, leiðir gönguferð um slóðir 250 ára sögu ljósmæðra. Gengið verður frá Skólavörðustíg 11 og komið við á þremur til fjórum áfangastöðum í miðbæ Reykjavíkur sem tengjast sögu ljósmæðra.