Þórisgil í Brynjudal - Glymur í Botnsdal

Númer: D-18
Dagsetning: 26.8.2012 - 1.1.1900
Brottfararstaður: Brottför frá Mörkinni 6 kl. 10.
Viðburður: Þórisgil í Brynjudal – Glymur í Botnsdal
Erfiðleikastig: Miðlungslangar dagleiðir (yfirleitt 5 – 7 klst.) oft í hæðóttu landi • bakpoki þarf ekki að vera þungur • engar eða auðveldar ár • þátttakendur þurfa að vera í nokkuð góðri þjálfunMiðlungslangar dagleiðir (yfirleitt 5 – 7 klst.) oft í hæðóttu landi • bakpoki þarf ekki að vera þungur • engar eða auðveldar ár • þátttakendur þurfa að vera í nokkuð góðri þjálfun
Lýsing:

Fararstjóri: Leifur Þorsteinsson

Brottför frá Mörkinni 6 kl. 10. Göngutími 4–5 klst.

Gangan hefst rétt innan Hrísakots í Brynjudal. Gengið með Þórisgili upp úr dalnum og yfir í Botnsdal. Ef veður og aðstæður leyfa verður gengið upp með Glymsgili og komið á þann stað þar sem Glymur sést allur. Gangan endar síðan við hliðið hjá Stóra-Botni í Botnsdal. Nánari upplýsingar um svæðið í ritinu Gönguleiðir upp úr Botni Hvalfjarðar eftir Leif Þorsteinsson.

Verð: 6.000 / 8.000

Innifalið: Rúta og fararstjórn.