Þórsmörk með FÍ um páskana

Ferðafélag Íslands verður með skálavörð í Langadal í Þórsmörk um páskana og stendur fyrir fjölskylduferð í Langadal. Tilvalið fyrir alla ferðafélaga að njóta náttúrufegurðar í Þórsmörk yfir páskana og eiga góða stund með fjölskyldunni á þessum einstaka stað.

Sérstakt páskatilboð verður á gistingu sem er kr. 3.000 fyrir félagsmenn og frítt fyrir börn og unglinga.

Þá stendur FÍ fyrir ferð í Langadal yfir páskana.  Lagt verður af stað á Skírdag með rútu frá Mörkinni 6 kl. 14 og komið til baka annan í Páskum. 

Farið verður í gönguferðir, leiki, haldnar kvöldvökur, sagðar sögur og sungið.

Verð í ferðina er kr. 22.000
Innifalið: rúta, gisting og fararstjórn

Sérstakt fjölskylduverð er kr. 35.000
Hjón + börn