Þrettándaferð í Þórsmörk

Árleg þrettándaferð FÍ í Þórsmörk 
5. - 6. janúar
Farið á jeppum og ekið með útúrdúrum í Langadal í Þórsmörk og  með stoppum og gönguferðum eftir því sem aðstæður leyfa
Lagt af stað úr Reykjavík snemma morguns á laugardegi. Þátttakendur hittast við Hlíðarenda á Hvolsvelli um kl. 10.  Ferðin hefst síðan kl. 10.30 þegar haldið er af stað frá Hlíðarenda.
Grillveilsa og kvöldvaka í Skagfjörðsskála á laugardagskvöldi.
Snemma á sunnudegi er lagt af stað frá skála og til Reykjavíkur með útúrdúrum og stoppum á áhugaverðum stöðum.  
Fararstjórar í ferðinni eru Gísli Ólafur Pétursson og Páll Guðmundsson.

Óbreyttir jeppar geta verið með í för ef aðstæður eru góðar, annars er þátttaka háð samþykki fararstjóra.

Skráning á skrifstofu FÍ, hringja eða senda tölvupóst á fi@fi.is

Verð kr. 4.000 / 6.000 á hvern þátttakenda
Innifalið: gisting, fararstjórn og grillveisla á laugardagskvöldi.

Sérstakt fjölskylduverð fyrir þrjá eða fleiri kr. 10.000