Tilboð til félagsmanna FÍ frá Cintamani búðinni

Kæru Ferðafélagar

Þann 7.apríl s.l. opnaði ný verslun að Laugavegi 11, Cintamani búðin. Fyrir þá sem ekki vita þá er Cintamani íslenskt vörumerki sem sérhæfir sig í útivistarfatnaði. Jahhh, eða bara fatnaði fyrir alla þá sem vilja láta sér líða vel við leik og störf. Já, og jafnvel líta vel út í leiðinni.

 Auk þess að selja fatnað frá Cintamani bjóðum við upp á ýmislegt annað sem okkur finnst sniðugt og skemmtilegt. Sem dæmi má nefna vasahnífa fá Leatherman, prímusa og eldunaráhöld frá JetBoil, húfur og vettlinga frá Outdoor Research, sandala frá teva, GPS tæki frá Garmin og ýmislegt fleira.

 Okkur finnst gaman þegar til okkar kemur fólk sem er virkilega að nota fatnaðinn og græjurnar okkar í að gera eitthvað uppbyggilegt og skemmtilegt. Nú fer veturinn að styttast í annan endann og nokkuð ljóst að dágóður hópur fólks er farinn að skipuleggja ævintýri sumarsins. Það er ánægjulegt að sjá að ferð á hæsta tind landsins að vori verður sífellt vinsælli og fólk flykkist út úr fylgsnum sínum til að njóta náttúrunnar.

 Frá 2.-14.apríl ætlum við að bjóða félagsmönnum Ferðafélagsins 20% afslátt af vörunum okkar gegn framvísum félagsskírteinis. Þess ber líka að geta að Ferðafélagsmenn eru ávallt með 15% afslátt,þ.e. allt árið um kring. Vonumst til að geta hjálpað sem flestum að græja sig upp fyrir ferðir á Hvannadalshnjúk eða hvert svo sem förinni er heitið. Þar sem við hér í búðinni eigum sjálf mjög erfitt með að eyða of löngum tíma í Reykjavík í senn verður lokað hjá okkur frá 5.-9.apríl, þ.e. yfir páskana.

Við erum ávallt með heitt á könnunni og svo erum við að koma okkur upp litlu bókasafni svo hægt er að setjast niður, glugga í blöð og bækur og staldra við um stund.

 Hlýjar kveður: Ásdís Dögg

Cintamani Búðin
Laugavegi 11
101 Reykjavík
S.517-8088
asdis@adventures.is
www.cintamani.is