Tindfjöll - Ýmir og Ýma - 1. maí

Ferðafélagið býður upp á gönguferð í Tindfjöll 1. maí nk. Gengið verður á Ými og Ýmu. Lagt verður af stað úr Mörkinni 6 kl. 8 á þriðjudagsmorgun. Ekið inn Fljótshlíð, upp í Tindfjöll og að neðsta skála þaðan sem gengið er á Ými og Ýmu.

Þátttakendur þurfa að hafa með sér brodda fyrir gönguna á Ými.

Gera má ráð fyrir að gangan taki 3 - 4 tíma.  Áætluð koma til Reykjavíkur þegar líður að kveldi.
Fararstjóri: Páll Guðmundsson

Skráning á skrifstofu FÍ fyrir kl. 15.00 mánudaginn 30. apríl.

Verð kr. 5.000 / 6.000
Innifalið far og fararstjórn.