Torfajökull í efsta sæti

Náttúrufræðistofnun Íslands hefur lokið umfangsmiklum rannsóknum á náttúrufari og verndargildi háhitasvæða á Íslandi. Niðurstöðurnar eru nú aðgengilegar almenningi á vef Náttúrufræðistofnunar.
Skemmst er frá því að segja á á lista yfir tíu verðmætustu háhitasvæði landsins er Torfajökulssvæðið í efsta sæti en það er talið einstætt í sinni röð í heiminum.
Torfajökulssvæðið hefur lengi laðað að sér ferðamenn og útivistarfólks og þarf varla að minna á að Landmannalaugar eru vinsælasti áfangastaður ferðamanna á hálendinu og gönguleiðin þaðan til Þórsmerkur sú fjölfarnasta á landinu.
Þess má geta að næsta árbók Ferðafélags Íslands fjallar um Torfajökulssvæðið og er höfundur hennar Ólafur Örn Haraldsson núverandi forseti félagsins.
Niðurstöðurnar eru birtar í fjórum skýrslum sem fjalla um gróður, fugla, smádýr og jarðminjar á 18 háhitasvæðum um land allt.
Torfajökull

Ferðalangur við sjóðheita hveri með sérstæðum útfellingum og gróðri undir Uppgönguhrygg skammt frá Hattveri í Jökulgili undir Torfajökli.