Úlfarsfell 1000

Í dag 31. maí verður haldin heljarinnar útihátíð á Úlfarsfelli þar sem stefnt er að því að fá alls eittþúsund manns á fjallið í göngu sem hefst kl. 18, annars vegar frá bílastæði Skógræktarinnar við Vesturlandsveg og hins vegar frá bílastæði ofan byggðar í Úlfarsárdal.


Í þessari skemmtigöngu mun Ferðafélag Íslands heiðra þá göngufélaga sem gengið hafa mörg hundruð sinnum á Úlfarsell. Reynir Traustason sem tók upp á því að stunda fjallgöngur fyrir nokkrum árum gengur í þúsundasta skipti á Úlfarsfell í þessari gönguferð.

Boðið verður upp á tónlistaratriði á Hákinn þar sem meðal annars Stuðmenn, Valdimar og Bjartmar Guðlaugsson stíga á svið og taka lagið og Raggi Bjarna endar prógrammið með því að syngja Vorkvöld í Reyjavík.

Reykavíkurborg og FÍ innsigla samstarf um aðkomu FÍ að uppbyggingu göngustíga í Úlfarsfelli og Landhelgisgæslan kemur með neyðarsendi frá FÍ sem settur verður upp í fjallinu.

Skemmtigöngustjórar verða Tómas Guðbjartsson og Páll Guðmundsson.

Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir.

Mæting er hvort tveggja við bílastæðið ofan Úlfarsárdals og við bílastæði Skógræktarinnar við Vesturlandsveg.

Þátttakendur eru hvattir til að mæta tímanlega og þeir sem koma stutt að hvattir til að koma gangandi eða hjólandi. Þátttakendur eru einnig hvattir til að koma með strætó. Gera má ráð fyrir að þröngt verði um bílastæði og hefur FÍ fengið leyfi til að nota bílastæði við Bauhaus en þaðan er stutt í upphafsstað göngu við bílastæði Skógræktarinnar við Vesturlandsveg.

Þátttakendur eru hvattir til að mæta vel búnir, í góðum gönguskóm og göngufatnaði.