Úlfarsfell 1000 Fjölskylduhátíð FÍ frestað

Í samráði við Veðurstofu Íslands hefur verið tekin ákvörðun um að fresta veglegri fjölskylduhátíð Ferðafélags Íslands, „Úlfarsfell 1000“.

Veðurspáin er afar óhagstæð fyrir dýran tónlistar- og hljóðfærabúnað sem stóð til að nota á hátíðinni.