21.07.2009
Nú stendur yfir ferðin í fríi frá Facebook sem er sérstök unglingaferð þar sem dvalið er í skála FÍ í Norðurfirði. Fararstjórar eru Felix Bergsson og Baldur Þórhallsson. Fullbókað var í ferðina. Að sögn skálavarðar í Norðurfirði, Guðrúnar Lárusdóttur er mikil stemming í hópnum. Farið er í skemmtigöngur á daginn og á kvöldin eru kvöldvökur, veiði og sprell. Í dag fer hópurinn gangandi í Ingólfsfjörð og Ófeigsfjörð og er sóttur til baka. Á hverju kvöldi er síðan farið í laugina á Krossanesi sem er ein sérstakasta sundlaug landsins.