Út að ganga með börn og barnavagna

Barnavagnavika FÍ og Ferðafélags barnanna stendur alla næstu viku. Erna Bergþóra leiðir mömmur og pabba, afa og ömmur með barnavagna í léttum gönguferðum alla vikuna.

Gengið er alla daga vikunnar frá mánudegi 9. maí til föstudagsins 13. maí kl. 12:30 og hver gönguferð tekur um 60-90 mínútur.

Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir. Ekkert að panta, bara mæta!

Sjá nánar um upphafsstaði hverrar göngu.