Útilíf býður félagsmönnum FÍ á kynningarkvöld

Ágæti ferðafélagi,

 

Okkur hjá ÚTILÍF er sönn ánægja að bjóða ykkur á okkar árlega kynningarkvöld í stærstu útivistardeild landsins í Glæsibæ miðvikudagskvöldið  10 október n.k.   kl.19,00

 

Útivistardeildin er m.a. troðfull af nýju vetrarlínunum frá The North Face og Cintamani.

Til að spara tíma og fyrirhöfn er gott að vera búin(n) að koma á undan og fara yfir allt sem í boði er, máta skó eða fatnað sem þið hafið áhuga á, þá gangið þið beint að hlutunum sem þið ætlið að kaupa á kynningarkvöldinu.

Þannig fáið þið betri þjónustu og meiri upplýsingar um vöruna áður en mætt er á kynningarkvöldið.

 

Á kynningarkvöldinu býður Útilíf 20% afslátt af öllum fjallabúnaði s.s. hlífðarfatnaði, svefnpokum,  tjöldum, bakpokum,  gönguskóm og öðru sem til þarf.

Einnig verða sértilboð á enn meiri afslætti og verða þau sérmerkt, ekki er afsláttur af snjóflóðaýlum eða GPS tækjum.

 

    Eins og allir vita þá er Útilíf með mörg þekkt og góð útivistarmerki á boðstólnum eins og The North Face, Marmot, Columbia, Ortovox, Boreal, Meindl, Lowa, Scarpa, Millet, Petzl, Grivel, Salewa, Silva, Komperdell, Lanex, Leki, Beal, Therm-A-Rest, MSR, Jetboil, Mountain Equipment, Primus, Cintamani og mörg önnur merki.

 

Vinsamlegast látið sem flesta félaga vita af þessu.

 

Með bestu kveðju,

 

Starfsfólk

Útilífs