Vað - námskeiðsferð í Þórsmörk um næstu helgi

Ferðafélag Íslands býður til vað-námskeiðsferðar um Þórsmerkurvötnin með gistingu í Skagfjörðsskála. Kennt verður að leita vaðs í ám og menn æfa sig í að vaða straumvatn.

Námskeiðið hentar öllum þeim sem á ferð sinni koma að vatnsfalli og þurfa að komast yfir - hvort sem þeir eru gangandi, hjólandi eða akandi. 

Verklegar æfingar á Þórsmerkurleið helgina 23. - 24. maí.

Skráning er á skrifstofu FÍ í síma 568-2533

Þátttökugjald fyrir fullorðna er kr. 12.000 / 14.000

Innifalið er:

Námskeiðsgögn.

Fararstjórn og gisting.

Grillveisla laugardagskvöldið 23. maí í Skagfjörðsskála í Þórsmörk.

Börn og fjölskyldufólk getur komið sér fyrir og dvalið í Skagfjörðsskála á meðan aðrir æfa sig í vötnunum.

Gisting og matur ókeypis fyrir börn.

Nánari lýsingu er að finna á www.gopfrettir.net/open/farplan