Valgarður Egilsson á Þingvöllum

Sögur og sagnir frá Þingvöllum í fimmtudagskvöldgöngu 21.júlí

Fimmtudagskvöldið 21.júlí mun Valgarður Egilsson læknir, rithöfundur og leiðsögumaður rifja upp ýmsar sagnir úr sögu Þingvalla frá þjóðveldisöld fram á síðustu öld.

Hann hefur sjálfdæmi um efnistök og eru allir velkomnir í gönguferðina sem hefst klukkan 20.00 við fræðslumiðstöðina.