Veður tekið að versna á hálendinu

 Ferðafélag Íslands bendir ferðamönnum á á breyttar veðurhorfur á hálendinu nú með haustinu. . Kólnað hefrur og má reikna með mikilli úrkomu og jafnvel snjókomu á næstu dögum. Fólk er því beðið að búa sig vel í haustveðrinu og gæta fyllstu varúðar áður en lagt er í lengri gönguferðir. Ökumenn gæti sérstakrar varúðar þegar þvera þarf ár þar sem þær eru margar hverjar afar vatnsmiklar vegna mikilla rigninga.

Björgunarsveitamenn úr Rangárvallasýslu sóttu í dag mann á Laugaveginn, gönguleiðina milli Þórsmerkur og Landmannalauga. Var maðurinn orðinn afar þreyttur og treysti sér ekki til að ganga lengra. Björgunarsveitir fóru á þremur bílum á svæðið þar sem mikið vatn er í ám og því óráðlegt að vera einbíla á ferð.

Fyrr í dag drógu félagar í björgunarsveitinni Dagrenningu á Hvolsvelli bíl upp úr Kirkjufellsósi á Landmannalaugasvæðinu. Hópur frá sveitinni var í vinnu í dag við að stika gönguleiðina á Fimmvörðuháls en þurfti frá að hverfa til að flytja blautt göngufólk niður að Skógum.