Ferðafélag Íslands, Umhverfisstofnun og Rangárþing ytra hafa í samstarfi sett upp vegvísa á Laugaveginum sem vísa göngufólki leið að næstu skálum til beggja átta og segja til um vegalengdir. Alls verða settir upp 23 vegvísar á leiðinni sem er 55 km. löng og er verkið nú hálfnað. Sjálfboðaliðar og landverðir hafa undanfarna daga unnið við að setja upp vegvísa á leiðinni. Það var Árni Tryggvason sem hannaði. Valitor er samstarfsaðili FÍ og hefur styrkt félagið til skiltagerðar og merkinga á helstu gönguleiðum.