Vegagerðin hefur opnað veg 208 í Landmannalaugar í Friðland að Fjallabaki en aðrir vegir á svæðinu eru enn lokaðir. Allur snjór er nánast farinn af svæðinu og jarðvegur nokkuð þurr. Opnað er óvenju snemma í Landmannalaugar í ár, eða rúmum tveimur vikum fyrr en árið 2018 þegar opnaði 11. júní. Umhverfisstofnun vill árétta að gróður og jarðvegur er sérstaklega viðkvæmur á þessum árstíma og því mikilvægt að einungis sé gengið á göngustígum eins og reglur kveða á um.
Ýmsar gönguleiðir í Landmannalaugum eru lokaðar vegna aurbleytu og verða ekki opnaðar fyrr en frost er farið úr jörðu og svæðið hefur náð að þorna. Gönguleiðin um Laugahraun og Grænagil, svokallaður Laugahringur er opin, en þó ber að varast einstaka snjóskafla í hrauninu við Grænagil sem geta gefið eftir þegar gengnið er á þeim.
Vegur F208 um Fjallabak niðra og vegur F225 Dómadalsleið verða lokaðir eitthvað áfram og einnig vegur að Ljótapolli. Talsvert hefur borið á því að ekið er inn á vegi þar sem akstursbann er í gildi og vill Umhverfisstofnun árétta að það er brot á lögum. Ástæða lokananna er ýmist vegna aurbleytu á einstaka köflum á vegum, vegir í sundur eða vegna viðkvæms ástands náttúru. Umhverfisstofnun biður því ferðaþjónustufyrirtæki og gesti að sýna biðlund og leyfa náttúrunni að njóta vafans.
Skálaverðir eru komnir til starfa í Landmannalaugum og bjóðum við gesti velkomna.
Sjá upplýsingar um skála í Landmannalaugum