Verklegi hluti vaðnámskeiðs um næstu helgi

Vaðaferðin - sem frestað var (átti að vera 7.-8. mars) - verður farin um næstu helgi - 21.-22. mars.

 

Eins og í aðrar vaðaferðir er fengur að vönum ferðafélögum auk þess sem hver ferð er okkur gleðistund. Láttu vita af þér ef þú getur slegist í förina svo unnt sé að áætla veisluföngin. 

 

Þeir sem óvanir eru - og gátu ekki skráð sig á námskeiðið vegna þess að þeir voru uppteknir fyrirhuguðu helgina - geta bæst í hópinn með því að skrá sig hjá Ferðafélaginu og þá verður undirbúningsfundur með þeim síðar í vikunni.