Vetraropnun í Landmannalaugum

Skálavörður FÍ eru nú kominn til starfa í Landmannalaugum og verður með fasta viðveru í Laugum út apríl. Fyrir skömmu var farin vinnuferð í Landamannalaugar þar sem skálinn var standsettur fyrir vetraropnun.  Öll aðstaða er nú opin í Laugum, þe skálinn, gistiaðstaða og eldhús, sem og salernisaðstaðan þe, vatnssalerni og sturtur og er nú bæði heitt og kalt rennandi vatn á svæðinu.
Sem fyrr þarf að bóka og greiða fyrir gistingu á skrifstofu FÍ.

Skálavörðurinn Kerstin Langenberger hefur starfað sem skálavörður hjá FÍ í þrjú ár, bæði í Emsturm og Hrafntinnuskeri. Í morgun var hún að huga að snjómokstri en meiri snjór hefur ekki verið í Laugum sl. 15 ár.

Sjá myndir úr vinnuferðinni.

Landmannalaugarhus