Vikulegar barnavagnagöngur

Ferðafélag barnanna minnir á vikulegar barnavagnagöngur sem félagið býður upp á í allt sumar á mánudögum kl 12.30. Lagt er af stað frá Perlunni og gengið um Öskjuhlíðina. Tilvalið að fá sér hressingu að lokinni gönguferð í góðum félagsskap. Þátttaka er ókeypis og allir eru velkomnir.

Gott að byrja vikuna á góðum göngutúr!