Vinnuferð í Húsadal

Ferðafélag Íslands stendur fyrir vinnuferð í Húsadal í Þórsmörk um næstu helgi og óskar eftir sjálfboðaliðum til að vinna við ýmis vorverk í Húsadal. FÍ leggur til ferðir og mat í vinnuferðinni en þátttakendur leggja fram vinnu í staðinn. Unnið verður á laugardegi frá kl. 9 - 17 og á sunnudegi frá kl. 9 - 16.

Lagt verður af stað í vinnuferðina á föstudegi kl. 18 frá Mörkinni 6.
Þátttakendur taka með sér fatnað og svefnpoka

Helstu verkefnin í vinnuferðinni eru málningarvinna, hreinsunarstörf og þrif.

Þeir sem vilja taka þátt í vinnuferðinni skrái sig með því að senda tölvupóst á fi@fi.is eða hringja á skrifstofuna í síma 568-2533.