Vakinn er sérhannað gæðakerfi fyrir íslenska ferðaþjónustu. Markmið Vakans er að efla gæði, öryggi og umhverfisvitund í ferðaþjónustu á Íslandi.
Siðareglur Ferðafélags Íslands
Ferðafélag Íslands fylgir siðareglum Vakans sem eru eftirfarandi:
- Ferðafélagið veitir viðskiptavinum sínum kurteislega og áreiðanlega þjónustu.
- Ferðafélagið virðir og viðheldur trúnaði og þagmælsku gagnvart viðskiptavinum.
- Ferðafélagið hefur að leiðarljósi fagmennsku, heiðarleika og sanngirni í öllum samskiptum og viðskiptum.
- Ferðafélagið sýnir öllum viðskiptavinum sömu virðingu og tillitssemi óháð t.d. kyni, uppruna, menningu, kynhneigð, trú, aldri, þjóðfélagsstöðu og líkamlegu atgervi.
- Ferðafélagið tryggir að allar upplýsingar til viðskiptavina séu réttar og að auglýsingar þess gefi sanna og trúverðuga mynd af þjónustu og aðstöðu.
- Ferðafélagið verðleggur vörur og þjónustu með skýrum hætti í samræmi við gildandi lög.
- Ferðafélagið leitast við að svara öllum fyrirspurnum og óskum á faglegan og skilvirkan hátt.
- Ferðafélagið tryggir sanngjörn og skjót viðbrögð við kvörtunum.
- Ferðafélagið hefur í heiðri öll lög og reglur varðandi reksturinn og fylgir þeim eftir.
- Ferðafélagið tryggir að faglega sé staðið að bókhaldi og reikningsskilum.
- Ferðafélagið uppfyllir allar skyldur við starfsmenn með því að fara að lögum og gildandi kjarasamningum.
- Ferðafélagið sér til þess að starfsfólk fái viðeigandi þjálfun og fræðslu og að vinnuskilyrði séu við hæfi.
- Ferðafélagið tryggir öryggi starfsmanna og viðskiptavina með faglegum starfsháttum, góðri aðstöðu og viðurkenndum búnaði.
- Ferðafélagið sýnir í verki ábyrgð gagnvart íslenskri náttúru, umhverfi og samfélagi.
- Ferðafélagið hefur í heiðri hagsmuni og orðstír Íslands sem hágæða dvalarstaðar, þar sem fagmennska, gestrisni, góð þjónusta og sjálfbærni eru í fyrirrúmi.